news

Föstudagsfrétt Krumma

15. 12. 2023



Komið sæl og blessuð kæru foreldrar :)

Í þessari viku höfum við verið að leggja áherslu á það að eiga notalega og góða samveru með hvert öðru á Krumma í aðdraganda jóla. Við höfum meðal annars verið að rannsaka og leika með ljós og skugga í rökkrinu og föndra saman jólaskraut. Vináttustund með Blæ bangsa var á sínum stað á miðvikudaginn en einnig höfum við verið að rifja upp málhljóð haustsins með honum Lubba og æft okkur að segja A, M, B, D, N og Í. Hér má sjá myndir úr leik og starfi.

Takk fyrir vikuna og góða helgi :)

© 2016 - Karellen