news

Viðburðarríkur Föstudagur - aukafrétt :)

19. 04. 2024

Hæhæ kæru foreldrar.

Við enduðum vikuna á þessum frábæra föstudegi með að fara í vettvangsferð. Við fórum í strætó og fórum í skrúðgarðinn í Njarðvík :)

Á meðan við biðum eftir strætó sungum við nokkur lög, svaka fjör!

Við erum orðin ofboðslega dugleg og flink að vera í strætó ;) Fengum okkur morgunhressingu í skrúðgarðinum og lékum okkur svo aðeins áður en ferðinni var heitið aftur upp á leikskóla :)

Eftir frábæra vettvangsferð fórum við svo í hreyfisalinn, þar er sko skemmtilegast að vera!!

Takk fyrir daginn og vikuna :) Góða helgi! :)

Starfsfólk Kríu.

© 2016 - Karellen