news

Föstudagsfrétt Kríu

19. 04. 2024

Hæhæ kæru foreldar og takk kærlega fyrir vikuna :)

Áfram höldum við með að æfa okkur með tölurnar og erum við orðin ofboðslega góð í því að telja! :)
Við prufuðum sjálf að vera "fílarnir sem lögðu af stað í leiðangur" og vá hvað það var skemmtilegt!
Lubbi var líka að kenna okkur um hljóðið "ú-Ú" eins og uglan segir ;)

Þessa vikuna fórum við í hreyfisalinn,

Lékum mikið saman inni og úti!

Fórum yfir á stóra útisvæðið og lékum okkur þar :)

Borðuðum mjög vel af góðum mat og áttum frábærar stundir saman á leikskólanum :)

Takk kærlega fyrir vikuna, hlökkum til að sjá ykkur á mánudaginn :)

Starfsfólk Kríu.


© 2016 - Karellen