Föstudagsfrétt Kríu
05. 04. 2024
Góðan dag kæru foreldrar og takk fyrir vikuna!
Þessa vikuna byrjuðum við aðeins að kynnast tölustöfunum þar sem það mun vera þemað okkar næstu vikur :)
Erum að syngja til dæmis um fílana sem fóru í leiðangur og 5 litlir apar, sem þeim finnst ofboðslega skemmtilegt og mikið hlegið þegar krókódíllinn nær öpunum ;)
Við fórum í vettvangsferð í vikunni, og núna þegar veðrið er að verða betra (vonandi) munum við fara oftar því okkur öllum þykir það svo ofboðslega gaman! :)
Góða helgi, sjáumst hress og kát á mánudaginn :)
Camilla, Ásdís, Guðmunda og Bryndís.