Hvíld og svefn

Hvíld hefst að loknum hádegismat í Heilsuleikskólum, og er hún mikilvægur hluti af heilsueflandi starfi skólans.
Í Heilsustefnunni er lögð sérstök áhersla á mikilvægi svefns sem lykilþátt í heilbrigðum lífsstíl – rétt eins og vatn, súrefni og næring eru svefn og hvíld forsenda vellíðunar, þroska og náms.

Á yngri deildum fara öll börn í hvíld, hvort sem þau sofa eða eiga rólega stund í nærveru kennara. Róleg stund, hvíld og svefn styðja við jafnvægi og vellíðan barna í leik og starfi yfir daginn.

Mikilvægi hádegissvefns

Rannsóknir sýna að ótti foreldra um að hádegissvefn trufli nætursvefn á oft ekki við rök að styðjast.
Þvert á móti er hádegissvefn mikilvægur hluti heildarsvefnþarfar barna og hefur jákvæð áhrif á nætursvefn. Þegar barn fær ekki hvíld eftir hádegi getur það orðið mjög þreytt síðari hluta dags, sem eykur magn streituhormónsins kortisóls. Hækkun kortisóls fyrir svefn gerir börnum erfiðara að sofna og gæti truflað svefninn meira en hvíldin sjálf.

Ef barn er vakið í miðjum djúpsvefni getur það haft neikvæð áhrif á líðan þess – barnið getur orðið pirrað, órólegt og átt erfiðara með að einbeita sér og taka þátt í leik og samskiptum.
Hádegissvefn er því kærkomin hvíld frá áreiti, hljóði og álagi í leikskólaumhverfi og hluti af því að styðja við daglega vellíðan barna.

Að meta svefnþörf barna

Góð þumalputtaregla er að skoða hversu auðvelt barni er að vakna.
Fólk vanmetur oft svefnþörf barna, og mörg börn þurfa meiri svefn en ætla mætti. Hádegissvefn er náttúruleg þörf og geta börn allt að 5 ára aldri þurft svefn eftir hádegi vegna uppsafnaðs svefnskorts.

Svefnþörf barna eftir aldri

  • 6–12 mánaða börn: 14–15 tímar á sólarhring
  • 1–3 ára börn: 12–14 tímar á sólarhring
  • 3–6 ára börn: 10–12 tímar á sólarhring
© 2016 - Karellen