Föstudagsfrétt Kríu
26. 04. 2024
Hæhæ kæru foreldrar, gleðilegt sumar :)
Þessi vika var alveg æðisleg, fengum frábært veður sem við nýttum heldur betur vel og fórum við í vettvangsferð og nýttum svo tækifærið og borðuðum nónhressinguna úti, ofboðslega skemmtilegt :)
Við fórum líka að sjálfsögðu í hreyfisalinn til Ástu, fórum líka í Listasmiðjuna til Bjarkar, alltaf gaman þar og að læra einhvað nýtt hjá þeim ;)
Í dag, föstudag, héldum við uppá sumardaginn fyrsta og það var gult þema, í útiveru fórum við í Bingó að finna allskyns gula hluti sem var búið að fela á víð og dreif um bæði leiksvæðin :)
Takk æðislega fyrir vikuna, eigið góða helgi og við hlökkum til að sjá ykkur á mánudaginn :)