news

Föstudagsfrétt

10. 11. 2023

Hæ Hæ

Góð vika að baki á Lóu, mikið og margt skemmtilegt brallað.

Allir krakkarnir fengu að æfa sig að vefa teppi fyir Blær bangsann sinn og sokkaskrímsli í listasmiðjunni hjá björk.

Einnig fengu allir að fara í gönguferð og í hreyfisalinn til Ástu. Einn daginn ringdi svo mikið að við drullumölluðum úti, þar bjuggu krakkarnir til ýmiskonar listaverk, drullueldhús, teboð og margt margt fleira.

Við höfum verið að skoa hvernig við getum tengt veður við leikinn okkar og nýtt þannig myndvarpann í leiknum, þetta þykir börnunum mjög spennandi.

Við enduðum vikuna okkar á danspatýi í hreyfisal, þar var fjör!

Nokkrar myndir úr vikunni okkar.


Takk fyrir góða viku

- Lóa

© 2016 - Karellen