Föstudagsfrétt
23. 02. 2024
Hæ Hæ
Í þessarri viku höfum við haldið áfram með vináttuþemað okkar, sungið lög þar sem vinir eru í fyrirrúmi og umræðan um vináttu mikil á deildinni.
Við vorum svo heppin að fá Leikskólakennaraneman hana Ylfu til okkar í vikunni og verður hún hjá okkur næstu tvær vikunar. Hún hefur verið að vinna allskonar skemmtilega leiki og verkefni með krökkunum.
Á föstudaginn seinasta fóru deildarstarfsmenn í breytingar á umhverfi deildarinnar. Bætt hefur verið við nokkrum plöntum, nýjum lömpum og körfum utan um leikföngin. Breytingarnar hafa vakið mikla lukku meðal barna og starfsfólks og virðist öllum líða vel í nýja umhverfinu okkar.
Við héldum upp á eitt afmæli í vikunni og óskum afmælisbarninu til hamingju með 4 ára afmælið sitt.
Njótið helgarinnar
- Lóa :)