news

Jóladans

18. 12. 2023

Skemmtileg uppákoma var hjá okkur í dag þegar við settum út þetta dáasamlega jólatré sem börnin í Skógarási gerðu úr endurnýtanlegum efniviði og skreyttu með málningu og jólaljósum.

Við sungum saman nokkur jólalög og dönsuðum í kringum tréð og síðan kom jólaálfur með mandarínur handa okkur við góðar undirtektir barna.

Í hádeginu fáum við síðan jólakræsingar að hætti Önnu og Innu í eldhúsinu, hangikjöt og meðlæti.

Jólin eru svo skemmtilegur tími, hátíð ljóss og friðar. Njótum samveru og gleðistunda saman.

© 2016 - Karellen