news

Krúttlegar kynjaverur á ferli í Skógarási

29. 11. 2022

Börnin á elstu deildinni Spóa hafa verið vinna með tröll og sköpuðu nokkrar skemmtilegar kynjaverur úr endurunnum efniviði eða sokkum sem ekki þjóna þeim tilgangi lengur. Sokkarnir voru úr sér gengnir og tilvalið að skapa þeim nýtt líf sem er í anda grænfánastefnu skólans og við tengjum við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna markmið nr.9 og nr.12. Tröllin eru hvert öðru skemmtilegra eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Myndir segja meira en mörg orð.



© 2016 - Karellen