news

Föstudagsfrétt

12. 11. 2021

Í þessari viku höfum við verið að læra stafinn Ee. Við höfum verið að syngja E lagið í Lubbabókinni okkar og svo erum við með skemmtilega stafa poka þar sem leynast of skemmtilegir hlutir sem byrja á stafi vikunnar.
Í þessari viku vorum við að stimpla myndir með eplum þar sem epli byrja á stafi vikunnar og notuðum litin gulan og rauðan sem blandast svo fallega og minna á haustið.

Við höfum haldið áfram að fara í listasmiðju og hreyfisalinn.

Í listasmiðju vorum við að mála á efni og líma á blað, skemmtilegar myndir sem hanga núna inni á deild hjá okkur.

Á föstudaginn fórum við í vettvangsferð á nálægan rólóvöll þar sem krakkarnir skemmtu sér konunglega.

Takk fyrir skemmtilega viku

© 2016 - Karellen