news

Föstudagsfrétt

30. 09. 2022

Góðan daginn

Í þessari viku var Lubbi að kenna okkur hljóðið N. Samhliða því höfum verið að æfa okkur að klappa atkvæði í orðum sem byrja á n.

Við fórum tvisvar í hreyfingu til Ástu í vikunni og einu sinni í tónlist hjá Hafdísi.

Í dag föstudag vorum við með opið á milli Krumma og Kríu og frjáls leikur þar sem þau vildu. Í útiverunni vorum við á Kríu svo með föstudagsfjör og buðum Krumma að vera með. Tónlist og sápulúlur þetta sló í gegn og allir mjög glaðir. Krummi mun svo sjá um föstudagsfjör og bjóða okkur í lok næsta mánaðar.

Við vonum að þið eigið góða helgi og sjáumst hress og kát í næstu viku.

49383-webservice-6336e89b72a52.jpg

49383-webservice-6336e90ab7374.jpg



© 2016 - Karellen