news

Föstudagsfrétt

24. 03. 2023

Hæ Hæ

Þessa vikuna hefur Lubbi kennt okkur hljóðin Ei ,Ey.

Við héldum einnig áfram að fræðast um sjávardýr:

Í vikunni komu foreldrar tveggja barna og lásu fyrir okkur á þeirra tungumálum

Tagalog og Pólsku, við þökkum foreldrunum innilega fyrir lesturinn.

Tannverndarvikan var haldin og skoðuðum við Karíus og Baktus, hvernig á að tannbursta, nota tannþráð og hvaða matur sé betri fyrir tennurnar en annar.

Krakkarnir kusu hvaða bók átti að lesa í samverustund og hvaða dót þau vildu leika með.

Við enduðum vikuna á vettvangsferð í fjöruna í innri Njarðvík.

Takk fyrir viðburðaríka viku

-Lóa

© 2016 - Karellen