news

Föstudagsfrétt

07. 10. 2022

Hæ Hó

Í vikunni lærðum við Lubba hljóðið Dd.

Orð vikunnar var Dropar sem við tengjum við haustið og rigninguna.

Vikan fór fram í rólegheitum. Við tókum á móti nýju starfsfólki, Dagbjörtu sem verður hjá okkur á deildinni og Stellu sem verður stundum með okkur.

Einnig var farið í vettvangsferð þar sem við klifruðum í klettum.


Og loks héldum við Skógarásleikana og það var sko gaman! Veðrið lék við okkur og sólin skein.

Takk fyrir góða viku og eigið góða helgi :)

Starfsfólk Lóu og Alex aðstoðarfréttastjóri!

© 2016 - Karellen