news

Besta eTwinning verkefni síðasta skólaárs - verðlaun

29. 10. 2019

Á dögunum hlaut skólin verðlaun fyrir besta eTwinning verkefni síðasta skólaárs, fyrir verkefnið "The Little Ecologist" eða litli vistfræðingurinn. Verðlaunin voru veitt af landsskrifstofu Erasmus+ á Íslandi (Rannís) við hátíðlega athöfn og erum við virkilega stolt af þeirri flottu vinnu sem liggur þar á bak við.

Af tilefninu komu hingað fulltrúar Rannís og tóku viðtal við hana Ingibjörgu Lilju starfsmann og gerðu kynningarmyndband sem er opið öllum á youtube MYNDBANDIÐ

Verkefnið er hluti af Erasmus+ verkefninu okkar "Eco Tweet" sem er umhverfisverndarverkefni þar sem nemendur læra um leiðir til þess að gæta að umhverfinu og taka ákvarðanir þar af lútandi. Í verkefninu læra börnin m.a. um vistfræði, verndun dýra, gróðursetningu, tré, kryddplöntur, vatn og endurvinnslu svo eitthvað sé nefnt.

Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar og Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar færðu okkur góða bókagjöf í tilefni þessarar flottu viðurkenningar og þökkum við kærlega fyrir.


© 2016 - Karellen