news

Sóttvarnir allra sem koma að Heilsuleikskólanum SKógarás

30. 08. 2021

Sóttvarnir allra sem koma að Heilsuleikskólanum Skógarás

Þessa dagana er mikið rætt um COVID-smit í samfélaginu og hvaða áhrif það hefur í nærumhverfi okkar. Leikskólar og grunnskólar eru mikilvægar stofnanir fyrir margra hluta sakir og áhersla er lögð á að skerða ekki þjónustu þeirra með fækkun nemenda og starfsfólks hverju sinni.

Nú sem aldrei fyrr reynir á ábyrgð allra á eigin sóttvörnum. Við ítrekum að allir þeir sem koma að leiksólanum sýni ríka ábyrgð þegar kemur að sóttvörnum, skuli gæta að eins metra nálægðartakmörkun, beri andlitsgrímur og gæta að persónubundnum sóttvörnum.

Tökum höndum saman og gerum okkar allra allra besta.

© 2016 - Karellen