news

Jólasöngstundir á Spóa

12. 12. 2018

Nú í desember hafa börnin og starfsfólk Spóa boðið restinni af leikskólanum til sín í stutta jólasöngstund á hverjum morgni. Í söngstundinni koma börnin saman í jólahorninu, þar sem búið er að skreyta svo fínt og syngja saman nokkur vel valin jólalög. Í gær vorum við svo heppinn að fá undirleik, en það var hann Hrafnkell, pabbi hennar Fanneyjar af Spóa sem kom og spilaði á gítar og börnin sungu svo fallega með.

Takk fyrir okkur og takk fyrir komuna. Gleðileg jól.

© 2016 - Karellen