Hreyfing yngstu barna Skógarás
07. 10. 2021
Hreyfing á Heilsuleikskólanum Skógarás er ein af áherslum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttir sem skólinn starfar eftir.
Hreyfistundir í sal í leikskólanum eru skipulagðar hreyfistundir í umsjá fagstjóra tvisvar í viku fyrir hvert barn. Til viðbótar hefur hvert barn aðgang að sal með sínum kennara þegar aðstæður leyfa.
Hreyfing yngstu barna er þau koma ný inn á leikskólann,er sett þannig upp að umhverfið hvetji þau í sjálfsprottinn leik og þannig fái þau ákveðið frelsi í öruggu umhverfi til að skríða, príla og veltast um, rannsaka og æfa sig á sínum forsendum og hraða.
Þau eru flest vön að ganga/skríða um á sléttu undirlagi og því er nauðsynlegt að þjálfa þau í að ganga/skríða á misháu og misjöfnu undirlagi. Þannig eykst samhæfing, jafnvægi og styrkur barnsins sem leiðir það til frekari áskorana.
Þegar þau hafa öðlast öryggi og færni þá eru hreyfistundirnar meira skipulagðar og þar gefst tækifæri til að meta stöðu einstakra barna og ýta undir frekari þroska og hæfni þar sem það á við. Skipulagðar hreyfistundir með ákveðnum markmiðum eru vettvangur fyrir hinn fullorðna til að skapa umhverfi og aðstæður sem laða fram ýmsa hæfileika barnsins sem annars kæmu ef til vill ekki upp á yfirborðið.