news

Klókir litlir krakkar -Foreldrafærninámskeið

10. 01. 2019

Reykjanesbær býður uppá færninámskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 3-8 ára sem farin eru að sýna fyrstu merki óöryggis og kvíða.

Námskeiðið verður haldið á tímabilinu 26.febrúar til 16.apríl og eru alls sex, skipti, tvær klukkustundir í senn. Fyrstu fjögur skiptin eru vikulega, en svo líða tvær vikur á milli fjórða, fimmta og sjötta tíma. Námskeiðið er haldið í Fjölskyldusetrinu við Skólaveg 1. Leiðbeinendur eru Einar Trausti Einarsson og Kristín Guðrún Reynisdóttir sálfræðingar.

Tímasetningar:

26.febrúar kl.17.00-19.00

5.mars kl.17.00-19.00

12.mars kl.17.00-19.00

19.mars kl.17.00-19.00

2.apríl kl.17.00-19.00

16.apríl kl.17.00-19.00


Námskeiðið er niðurgreitt að stærstum hluta af skólaþjónustu Reykjanesbæjar og er því hlutur pars: 10.000kr. og einstaklings: 8.000kr. Greiða þarf námskeiðisgjald minnst viku fyrir upphaf námskeiðis. Hægt er að greiða með því að millifæra á reikning nr. 0121-26-000001, kt.470794-2169 með skýringunni: Klókir litlir krakkar. Kvittun greiðslu skal senda á netfangið: einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is

Upplýsingar um námskeiðið eru aðgengilegar á vef bæjarins; https://www.reykjanesbaer.is/is/thjonusta/menntun-og-fraedsla/serfraedithjonusta/foreldrafaerninamskeid

Þá er verið að leggja lokahönd á stutt kynningarmyndbönd (glærukynningar með hljóði) þar sem veittar eru frekari upplýsingar um námskeiðin. Markmiðið er að birta myndböndin á vef Reykjanesbæjar.


Skráning á námskeiðið er í gegnum mittreykjanes.is

Frekari upplýsingar um námskeiðið veitir Einar Trausti í síma 421-6700 og með tölvupósti einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is

© 2016 - Karellen