news

vikan 3 - 7 desember

07. 12. 2018

Hljóð vikunnar var Ff og sungum við vísurnar úr Lubbabókinni okkar og lásum textann þar. Fundum svo nokkur vel valinn orð sem byrja á stafnum f og voru þessi fimm orð fyrir valinu.

Orð vikunnar: Fata, Fugl, Flugvél, Fótur, Fiðrildi.

Við höfum haft nóg að gera þessa vikunna ;)

- Förum á spóa alla morgna í desmeber og höfum notalega jólasöngstund þar.

- Erum að jólaskreyta deildina okkar og er það mikið fjör.

- Bökuðum piparkökur á fimmtudaginn og fannst krökkunum það mikið fjör.

Snjórinn lét loksins sjá sig í vikunni og börnunum fannst ótrúlega gaman að fara út að leika sér þrátt fyrir smá kulda.

Við viljum minna foreldra á að yfirfara útifötin þar sem það er farið að kólna í veðri og gott ef börnin séu með góða vettlinga og ullasokka í hólfinu.

Takk fyrir skemmtilega viku.

Góða helgi.

© 2016 - Karellen