news

Vikan 7. - 11. janúar

11. 01. 2019

Í þessari viku var Lubbi að kenna okkur hljóðið Ii, Yy. Lubbi kenndi kkur hreyfingu með hljóðinu og lag sem inniheldur hlóðið Ii, Yy.

Orð vikunnar voru: Indáni, Innkaupakerra, Ilmvatn, Inniskór og Il.

Í vikunni fórum við í hreyfisalinn þrisvar. Ásta leikfimiskennari tók hópinn tvisvar þar sem þau fengu að spreyta sig á þrautbraut sem reyndi á þolið. Þar sem veðrið hefur ekki verið gott og erfitt að fara út þá fórum við á miðvikudaginn í þriðja sinn í hreyfisalinn þar sem þau léku sér með bolta og dönsuðu með skemmtilegri tónlist.

Mánudaginn 7. janúar byrjuðu fimm ný börn á deildinni okkar og bjóðum við þeim hjartanlega velkomin til okkar á Krummadeild.

Skarphéðinn okkar verður 2 ára 12. janúar og héldum við uppá afmælið hans í dag þar sem hann fékk að velja sér flottan disk og glas og einni fékk hann afmæliskórónu. Við óskum honum innilega til hamingju með daginn.

Takk fyrir vikuna og góða helgi.

© 2016 - Karellen