news

Vikan 25. febrúar - 1. mars

01. 03. 2019

Í þessari viku var Lubbi að kenna okkur hljóðið Þþ. Hann kenndi okkur einnig tákn og skemmtilegt lag með hljóðinu þ.

Orð vikunar voru: þrír, þríhyrningur, þeyta, þota og þak.

Í þessari viku:

- fórum við 2x í hreyfisalinn til Ástu í leikfimi

- Kríu deild bauð okkur 3x að kíkja yfir til þeirra og vera með þeim í söngstund og morgunhressingu

- fórum í listasmiðjuna til Bjarkar

- fórum út í rigninguna og fengum að hoppa og skoppa í pollunum úti

Á fimmtudaginn átti Ermioni 2 ára afmæli og héldum við uppá það á deildinni okkar. Hún fékk afmæliskórónu, afmælissöng og að velja sér glas og disk til þess að borða með. Við á Krumma óskum henni innilega til hamingju með daginn.

Takk fyrir góða viku og góða helgi.

© 2016 - Karellen