news

Föstudagsfréttir

28. 05. 2021

Á þriðjudaginn var brunaæfing þar sem við æfðum okkur í réttum viðbrögðum og fórum út um brunaútganginn á deildinni sem er gluggi inn í hvíldarherbergi. Þetta gekk allt saman mjög vel þrátt fyrir reyk og læti í brunabjöllunni.

Í dag þurftum við að fresta sumarhátíðinni vegna veðurs og verður hún haldin við fyrsta tækifæri og gott veður.

Við erum ennþá í upprifjun hjá Lubba og verðum næstu vikurnar.


Takk fyrir vikuna og góða helgi :)

© 2016 - Karellen