news

Föstudagsfrétt

19. 03. 2021

Nýr starfsmaður byrjaði hjá okkur á mánudaginn og það er hún Sigrún Birta, við bjóðum hana velkomna á Krumma :)

Í þessari viku kenndi Lubbi okkur stafinn Ææ. Við sungum Ææ lagið, gerðum hreyfingu með því og ræddum um nokkur orð sem byrja á Ææ eins og ævintýri, ær og æðakolla.

Við fórum í hreyfingu hjá Ástu, vorum að ríma, lærðum litina og stærðfræði með því að nota Numicon kubba, fórum í útiveru, sungum, hlustuðum á sögur og fórum í skemmtilegt lottó sem byggist á að þjálfa hlustun og orðaforða.

Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi :)

© 2016 - Karellen