news

Föstudagsfrétt

12. 03. 2021

Í þessari viku kenndi Lubbi okkur stafinn Ðð. Við sungum Ðð lagið, gerðum hreyfingu með því og ræddum um nokkur orð sem innihalda Ðð eins og bað, lúða og kaðall.

Á mánudaginn og miðvikudaginn fórum við í hreyfingu með Ástu þar sem við gerðum skemmtilegar æfingar. Við vorum líka að ríma, syngja, hlusta á sögur, leira og margt fleira ásamt því að fara út í roki, rigningu og snjó.

Við kveðjum Helenu okkar í dag þar sem hún er að hætta störfum og við munum svo sannarlega sakna hennar. Einnig kveðjum við hann Guðmund William og óskum honum góðs gengis á nýja leikskólanum.

Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi :)

© 2016 - Karellen