news

Föstudagsfrétt

05. 03. 2021

Í þessari viku kenndi Lubbi okkur stafinn Rr. Við sungum Rr lagið, gerðum hreyfingu með því og ræddum nokkur orð sem byrja á þeim staf eins og rennibraut, rigning og refur. Þessi vika er búin að vera mikil rigningarvika, en veðrið stoppaði okkur ekki að fara í pollafötin og hoppa í pollum.

Það var gefið grænt ljós á að byrja aftur í skipulögðum hreyfistundum hjá Ástu og var mikil gleði á miðvikudaginn þegar við fengum að fara í hreyfisalinn. Við fórum líka í listasmiðjuna með Björk og gerðum myndir með stöfunum okkar.

Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi :)

© 2016 - Karellen