Vikufréttir 25. feb. - 1. mars
01. 03. 2019
Í þessari viku höfum við verið að læra hljóðið Þþ með Lubba. Við sungum Þ lagið úr Lubba bókinni okkar og skoðuðum orð sem byrja á Þ eins og þota, þrír, þak þyrla og þreyttur.
Krummi kom og var með okkur 3 sinnum í samveru þessa vikuna þar sem við sungum saman og fengum okkur morgunhressingu.
Við fórum 2 sinnum í hreyfisalinn með Ástu.
Við fórum í listasmiðjuna með Björk.
Og einn daginn skemmtum við okkur úti að hoppa í polla og leika í rigningunni.
Takk fyrir vikuna