news

Vikufréttir

25. 10. 2018

Vikan 15.-19. október

Síðasta vika var skemmtileg vika og brölluðu krakkarnir margt og mikið.

Hljóð vikunnar var Ú og sungum við ú lagið og lásum ú söguna í Lubbabókinni okkar einnig ræddum við orð sem byrja á ú.

Það sem stóð mest upp úr í vikunni er að á föstudeginum fórum við í strætóferð og vorum með ávaxtastund úti. Börnin skemmtu sér stórkostlega vel bæði úti og í strætóferðinni.


Allir biðu spenntir eftir að strætó kæmi

Ávaxtastund úti


Takk fyrir vikuna

© 2016 - Karellen