Vikufrétt 6.-10. maí
10. 05. 2019
Í síðustu viku fengum við afskaplega gott veður og nýttum það vel í útiveru.
Nú þegar hlýna fer í veðri er gott að hafa meðferðis utanyfir föt, peysu og buxur, sem hægt er að fara í út þegar sólin skín. Einnig er gott að vera með þynnri vettlinga.
Við máluðum sumarlegar myndir þar sem við máluðum á laufblöð og stimpluðum svo með þeim á blað.
Á föstudaginn tókum við þátt í hreinsunardeginum á Ásbrú og fórum í göngutúr í kringum leikskólann okkar og týndum upp rusl.
Takk fyrir skemmtilega viku