news

Vikufrétt 22. - 26. október

01. 11. 2018


Hljóð vikunnar var Vv og erum við búin að vera dugleg að syngja lagið í Lubba bókinni og ræddum við orð sem byrja á V eins og vetur, vindur og verkfæri ásamt fleirum.

Á föstudaginn kom fyrsti snjórinn og þótti krökkunum mjög gaman að fara út að leika í snjónum þó svo að það hefði ekki snjóað mikið.

Á föstudaginn var alþjóðlegi bangsadagurinn og komu börnin með bangsana sína í leikskólann.

Krakkarnir léku sér með fjaðrir einn morgun og skemmtu sér alveg stórkostlega


Takk fyrir vikuna


© 2016 - Karellen