news

Vikufrétt 20.-24. maí

24. 05. 2019

Við höfum fengið æðislegt veður þessa vikuna og höfum því verið mikið úti.

Eldri börnin hafa farið í smiðjurnar sem eru í gangi núna á sumarönn og í vikunni fóru þau í:

Vettvangsferðir - í þessari viku var farið í landnámsdýragarðinn og í fjöruna við Víkingaheima.

Hreyfing - í þessari viku voru börnin í útileikjum

Listasmiðja - í þessari viku smíðuðu börnin báta

Umhverfismennt/vísindi - í þessari viku bjuggu börnin til myndir úr sápukúlum ásamt því að leika sér með sápukúlur


Á föstudaginn lékum við okkur öll á yngri deildunum saman með sápukúlur úti og skemmtu börnin sér mjög vel.


Takk fyrir skemmtilega viku

© 2016 - Karellen