news

Síðasta vika

09. 09. 2019

Í síðustu viku vorum við að gera margt skemmtilegt. Við prufðum að mála með lituðum klaka. Börnunum fannst það mjög sérstakt og vildu þau helst ekki halda á klakanum ef hann brotnaði af handfanginu. Svo var þetta pínu freistandi að prufa að sleikja hann.


Leikskólinn átti afmæli 2. september og fögnuðum við því með sameiginlegri söngstund með hinum deildunum. Síðan í útiveru var Skógaráshlaupið. Eldri deildarnar fóru út af leikskólalóðinni og við tókum okkar hlaup inni á eldra útisvæðinu hjá okku.

© 2016 - Karellen