news

Frábær vika

08. 05. 2020

Nú er þessari viku að ljúka og erum við búin að bralla helling. Sumarönnin er byrjuð og leggjum við áherslu á meiri útiveru og förum í vettvangsferðir. Farið er á hverjum degi í vettvangsferð nokkur börn frá Kríu og Krumma. Við erum svo heppin að vera með æðislegt umhverfi í nágranni við leikskólann sem við nýtum okkur að fara á og skemmta okkur.


Við tókum hveitidansinn í vikunni. Vorum með hveiti á gólfinu og börnin fengum að skynja hann með tánum og höndunum. Þetta vakti mikla lukku hjá börnunum.


© 2016 - Karellen