Föstudagsfréttir
08. 10. 2021
Góðan daginn
Þessa vikuna er Lubbi að kenna okkur hljóðið D
Við erum farin að bjóða öllum börnum að setjast á kopp eða klósett áður en þau fá nýja bleiu. Krakkarnir erum mjög dugleg að setjast og einstaka piss/kúkur hefur komið í koppinn en aðalega eru þau bara að setjast. Þau fá svo stimpil á hendurnar eftir að hafa sest.
Við höfum verið að leika okkur með ljós, form og skugga í þessari viku.
Í dag var sameiginleg söngstund með öllum inn í hreyfisal. Þar sem alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er í dag. Fyrst var sameiginleg söngstund og svo Blæstund þar sem við gáfum böngsunum okkar nudd, knús og fórum í smá slökun.
Takk fyrir vikuna og góða helgi.