news

Föstudagsfrétt

19. 03. 2021

Góðan daginn

Dagný deildarstjóri kom úr fæðingarorlofi á mánudaginn og bjóðum við hana velkomna aftur til okkar.

Þessa vikuna hefur Lubbi verið að kenna okkur stafinn Ææ

Orðin okkar voru æpa, æfa sig, æðarkolla, ævintýri og ær. Við ræddum um hvað þessi orð þýða og klöppuðum atkvæðin.

Við erum aðeins farin að föndra fyrir páskana og i lok næstu viku munu börnin taka skrautið með sér heim.

Í dag byrjaði Guðmundur Jacob hjá okkur og bjóðum við hann velkominn.

Elstu krakkarnir hafa verið að kíkja yfir á svæðið hjá eldri krökkunum og venjast því áður en þau flytjast upp um deild í haust.


Takk kærlega fyrir vikuna og góða helgi.





© 2016 - Karellen