news

Alþjóðlegi dýradagur og hreyfing

04. 10. 2019

Í hreyfingu í vikunni vorum við að vinna með litina í gegnum hreyfingu. Unnið var með grunnlitina gulur, rauður, grænn og blár. Í samfloti við það vorum við með tákn vikunnar gulur.

Alþóðlegi dýradagurinn verður næsta sunnudag og fögnuðum við honum í dag. Börnin komu með ýmsar myndir af dýrum með sér í leikskólann og sýndum vinum sínum. Þeim fannst þetta mjög skemmtilegt. Einning fengum við heimsóknir frá dýrum. Hamsturinn Oreo kom til okkar og hundurinn Örvar. Við lærðum það að við verðum alltaf að leyfa hundunum að finna fyrst lyktina af okkur áður en við klöppum þeim.

© 2016 - Karellen