news

Jólaheimsókn

20. 12. 2017

Síðasta föstudag vorum við með frábært jólaball í salnum hjá okkur. Við fengum óvænta heimsókn frá tveimur jólasveinum. Þeir dönsuðu og sungu með okkur og enduðu á að gefa okkur mandarínur.

Eftir jólaballið komu foreldrarnir í heimsókn til okkar og buðum við þeim að smakka á piparkökunum sem við vorum búin að baka. Rosalega var skemmtilegt að fá svona marga gesti. Gleðin ljómaði hjá okkur.


© 2016 - Karellen