Föstudagsfrétt
01. 10. 2021
Kólnað hefur svakalega þessa vikuna en það hefur ekki stoppað krakkana við að fara út að leika.
Allt starf í leikskólanum er komið á fullt þar með talið hreyfisalurinn hjá Ástu, listasmiðjan hjá Björk og tónlistartímarnir hjá Hafdísi.
Við höldum áfram með verkefnið Runninn Okkar sem snýst um að taka mynd af runnanum okkar 1 hvers mánaðar á nákvæmlega sama tíma.
Þetta hefur verið góð vika.