news

Föstudagsfrétt

17. 01. 2020

Í þessari viku höfum við verið að læra hljóðið Ii/Yy, krakkarnir hafa verið duglegir að syngja með okkur Ii/Yy lagið í Lubba bókinni. Við höfum einnig verið dugleg fara yfir öll hljóðin og syngja lögin sem fylgja hverju hljóði.

Við höfum notið þess að fara út þegar veður leyfir og leikið í snjónum og rennt okkur á þoturössum. Það hefur mikil gleði ríkt í kringum útiveruna þessa vikuna.

Í vikunni fóru hóparnir í listasmiðjuna með Björk þar sem þau unnu myndir tengdar sól og stjörnum.

Við höfum verið dugleg að fara í hreyfisalinn okkar að hreyfa okkur og framkvæma ýmsar æfingar.

Takk fyrir góða viku

© 2016 - Karellen