news

Grænndagur

17. 09. 2021

Gleðilegan grænan dag!, rosalega skemmtilegur og öðruvísi dagur þar sem við fórum með elstu börnunum á spóa að gróðursetja tré í skóginum okkar. Allir voru rosalega duglegir alla leiðina í gegn sama hvort það var að bera eitthvað eða bíða eftir skóflu. Þegar við vorum á leiðinni tilbaka þá hittum við hin börnin af Spóa og Lóu sem voru úti að týna rusl. Þá fórum við öll saman hringinn í kringum leikskólann og náðum í rusl, þegar við komum aftur inn á leikskólalóðina var viktað rusllið og var það um 3.8kg! Takk fyrir skemmtilegan grænan dag.

© 2016 - Karellen