Föstudagsfrétt
11. 06. 2021
Þessi fallega vika var mjög róleg, Á miðvikudeginum fórum við í göngu og smá útikennslu þar sem krakkarnir fengu einn hlut og áttu að halda á þeim hlut í gegnum litla þrautabraut og áttu svo að setja hlutinn á réttan bókstaf,
fannst þeim þetta mjög gaman og var þeim svo leyft að leika sér eftir verkefnið. Veðrið var rosa fínt á föstudaginn og var haft rosalega gaman í sandkassanum, mikið er unnið með stærðfræðina sem sést á myndinni.