Föstudagsfrétt
19. 03. 2021
Mjúka Gg er stafurinn sem Lubbi hefur verið að kenna krökkunum í þessari viku.
Margt og mikið gerðist í vikunni þrátt fyrir mikla rigningu og rok.
2015 árgangurinn fór með strætó í Reykjaneshöllina á fótboltaæfingu í boði Knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Hópur af krökkum fór á bókasafnið að hlusta á sögu og skoða bækur og það fannst þeim skemmtilegt.
Útikennslan var á sínum stað í vikunni og var farið síðustu 2 dagana í vikunni. Veðrið stoppar það ekki. Alltaf finnst krökkunum jafn gaman.
Einnig hafa krakkarnir verið að vinna í böngsunum fyrir Listahátíð barnanna.