news

Föstudagsfrétt

12. 02. 2021

Öö er stafurinn sem Lubbi hefur verið að kenna okkur í vikunni.

Margt hefur verið gert þessa vikuna enda hefur veðrið verið mjög gott við okkur.

Hópur af krökkum frá Spóa og Lóu fóru í langa gönguferð um Ásbrúarhverfið. Farið var meðal annars að vatnstönkunum rétt fyrir utan Ásbrú.

Svo snjóaði aðeins hjá okkur og það fannst krökkunum mjööög gaman.

Gerðir voru líka bolluvendir fyrir bolludaginn næstkomandi mánudag.

© 2016 - Karellen