news

Föstudagsfrétt

15. 01. 2021

Lubbi hefur verið á fullu alla vikuna að kenna krökkunum að læra stafinn Oo.

Helling hefur gengið á þessa viku og er hópastarfið komið á fulla ferð.

Krakkarnir fengu snjó í nokkra daga til þess að leika sér í áður en rigning kom.

Haldið var uppá nokkur afmæli í vikunni.

Elsti árgangurinn fór í skemmtilega ferð í Reykjaneshöllina og gerðu þau nokkrar fótbolta æfingar í boði Knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Veðrið var einnig nýtt í góða gönguferð sem krökkunum fannst mjög skemmtilegt.

© 2016 - Karellen