Föstudagsfrétt
20. 11. 2020
Síðustu 2 vikur hefur Lubbi verið að kenna krökkunum stafina Uu og Ll.
Starfið hefur verið fjölbreytt og skemmtilegt síðustu 2 vikurnar.
Við ákváðum að hafa íþróttatíma inná deild þar sem meðal annars var spilaður fótbolti með tveimur mörkum.
Vettfangsferðirnar hafa verið þó nokkrar og gerðar voru þrautir í ferðunum.
Kuldinn er kominn til að vera í smá tíma og þess vegna viljum við benda á að koma með kuldaskó og ullarsokka, stígvel, hálskraga, góða þykka vettlinga, fingravettlingar eru ekki vetrarvettlingar.