news

Föstudagsfrétt

11. 09. 2020

Lubbi er á fullri ferð og var að kenna krökkunum stafinn M í þessari viku.

Krakkarnir eru að þjappast saman og mynda góð tengsl.

Á miðvikudaginn fór stór hópur af krökkunum niður á bókasafnið og þar var lesin bók fyrir þau og svo skoðuðu þau sjálf bækur.

Á fimmtudeginum var farið með strætó í íþróttahúsið hjá Háaleitisskóla og þar var hlaupið og spriklað og lært stafi í leiðinni. Það fannst þeim mjög skemmtilegt.

© 2016 - Karellen