Föstudagsfrétt
01. 11. 2019
Margt spennandi gerðist hjá okkur á deildinni þessa liðnu viku þar á meðal var boðið skólahópinum á leikrit.
Mánudaginn 28 október fékk skólahópurinn skemmtilegt boð á leikrit í Hljómahöllinni sem heitir Ómar Orðabelgur. Allir skemmtu sér konunglega.
Miðvikudaginn 30 október fór hópur af krökkum frá Spóa og Lóu í heimsókn á bókasafnið. Krökkunum fannst það nú ekki leiðinlegt.
Einnig hafa krakkarnir verið að vinna í hinum ýmsu hlutum í hópastarfinu eins og til dæmis teiknuðu þau myndir og þeim varpað uppá myndvarpa.